Guðbjörg Hrönn bloggar
Skólinn minn
Leitarvélar
Tenglar
13.12.2009 18:36:39 / Gugga

Langt síðan síðast!

Úff!  Góðan daginn og afsakið hvað það er langt síðan ég hef skrifað:| !
Það nennir sennilega enginn að kíkja á síðuna mína lengur:$ !
Á miðvikudaginn var kórinn minn að syngja á Hátíð í bæ, tónleikum á Selfossi, fyrst sungum við einar, semsagt bara kórinn, svo sungum við með Páli Óskari:) .  Það voru flestir mjög ánægðir með okkur;) .  Svo spilaði ég Snjókorn falla í dag með Iðunni 
(í kórnum) á klarinett og kórinn söng með:d.  Þetta var í safnaðarheimilinu eftir messu í dag.  Ég söng líka einsöng og margir fleiri því þetta var fjáröflun fyrir utanlandsferð kórsins.
Nú hef ég ekki meira að skrifa í bili:| .

B Í B

» 0 hafa sagt sína skoðun

15.04.2009 07:05:58 / Gugga

Góðann daginn og gleðilega páska!

Í páskamessunni kl. 8 á sunnudagsmorguninn var ég krossberi og Arndís ljósberi. ;)  Hún fór semsagt fyrst inn í kirkju með kerti, páskaljosið, og ég kom á eftir með stóra, þunga krossinn (Róðukrossinn).  Svo fór ég inn fyrir altari og kveikti á öllum kertunum þar og svo settumst við bara á bekkinn á móti djáknanum og meðhjálparanum.  Svo fórum við á undan út líka, með krossinn og kertið.  Dagný María var líka með okkur þarna og var "Biblíuberi":haha:.  Þ.e.a.s. hún hélt á biblíunni.  Eftir messuna fengum við okkur morgunmat í safnaðarheimilinu og fórum svo heim að borða páskaegg. :)


B Í B :p


» 0 hafa sagt sína skoðun

07.10.2008 12:50:52 / Gugga

Afmælið mitt!!!

Hæ, hæ!
Á afmælinu mínu, 17. september, kom amma og það var mjög gaman að hafa hana, en afmælisveislurnar voru báðar laugardaginn 20. sept.  Á föstudeginum kom Auður og það var æðislegt!  Fyrst á laugardeginum var fjölskylduafmælið en strax á eftir var krakkaafmæli og þá byrjaði fjörið.  Við vorum svo lengi að leika okkur að mamma bauð bara mömmunum, sem ætluðu að sækja stelpurnar, í kaffi svo þær máttu vera lengur.
Það var mjög gaman og best að fá Auði.  Mér hefði verið sama þó að ég hefði ekki fengið afmælisgjöf frá henni, besta gjöfin var að fá hana í heimsókn!

B Í B

» 0 hafa sagt sína skoðun

28.05.2008 07:44:17 / Gugga

Ný síða

Halló!:þ
Það er starfsdagur í skólanum svo ég ákvað að nota tímann og skrifa smá.;)  Ég var að búa til bloggsíðu með bestu vinkonu minni, Auði, og ég var að laga hana svolítið og svona.:$  Síðan birtist í tenglum, svo endilega  heimsækið síðuna!:haha:   Í  gær var ég að leika við tvær bekkjarsystur mínar  og það var mjög gaman.:)  Svo fór ég út að slá, en allt í einu datt reimin sem knýr slátturspaðana af.:s Svo ég keyrði á slátturtraktornum út á verkstæði til pabba og hann reyndi að laga þetta.:|  Svo fór ég heim aftur að prófa, en hann bilaði strax aftur, svo ég gat ekki slegið meira.:whut:
Ég er svo að fara í skólaferðalag að Skógum á morgun!:d  Skólinn er búinn hinn daginn, og þá fer ég til Víkur í reiðskóla, eins og venjulega.:lol:

Þarf að fara,
B Í B


» 0 hafa sagt sína skoðun

18.03.2008 10:38:37 / Gugga

Farin að vinna

Sæl aftur!:)  Nú er ég farin að vinna á Jeppasmiðjunni.:d  Ég byrjaði í gær.:$  Ég hef reyndar oft komið þangað að vinna, en bara svona einn og einn dag í einu.:|  Nú nota ég fríið til að vinna.;)  Ég hef alltaf meira og meira að gera og minni og minni tíma til að skrifa.:( 
Um helgina fórum við til Egilsstaða í fermingu hjá Viktori Sigbirni, vini okkar.:lol:  Við fórum þangað í fyrsta skipti með flugi, leigðum okkur bíl og gistum í frábærri íbúð sem er í bankanum.8)  
Svo ætla ég bara að hafa það gott í páskafríinu og ég vona að við förum til Víkur um páskana.:haha:

» 1 hafa sagt sína skoðun

11.02.2008 13:38:01 / Gugga

Viktor Smári

Á laugardaginn var skírn á Sauðárkróki hjá litla stráknum hennar Hrannar.:lol: Nú heitir hann þessu líka fína nafni Viktor Smári.:D  Við fórum samferða Hafsteini og Stínu norður og til baka, en í bakaleiðinni var hræðilegt veður mestalla leiðina og við komumst ekki heim fyrr en  kl.00:15 og fengum okkur morgunmat kl.00:30.:haha: Reyndar fengum við okkur aftur um morguninn.:$ 
Jæja...nú er ég tóm.....:o
Alla vegana í bili...

 

B Í B:P


» 0 hafa sagt sína skoðun

12.01.2008 13:20:58 / Gugga

Gleðilegt ár!

Hæ, öll sömul!:haha:  Ég er komin aftur eftir laaaaangt bloggfrí.:o  Það er barasta aldrei tími til skrifta (eða, ég segi svona).8|Hm... Ja, betra seint en aldrei..gleðileg jól!;)  Ég hef víst alveg gleymt jólablogginu!:S  Og áramótablogginu...Hm... O, jæja, ég segi þá bara líka gleðilegt ár.:)  Úff, nóg komið af bullinu í mér...Hm... Arndís er í fimleikum, Guðjón á leið í afmæli, við ekki enn búin að taka allt jólaskrautið niður (þótt ótrúlegt sé;) og pabbi er að vinna í því.:lol:  Já, og svo er ég náttúrulega að blogga og mamma að hjálpa Guðjóni að undirbúa sig fyrir afmælið og svo keyrir hún hann þangað.:P  Smá fréttir af mér...hm...Sko...Jámm, í vetur fann ég að mér var orðið illt í hægri hælnum.:|  Það varð sífellt verra og ég var fljótlega orðin hölt.:(  Læknirinn sagði að þetta væri líklega "hælspori".:$  Hann myndast líklega af hröðum vexti fótarins og sinin undir ilinni fylgir vextinum ekki.:whut: (enda segir mamma að ég sé með ofvaxna fætur.  Ég er í skónúmerunum 39-41)  Ég má ekki fara í frjálsar, leikfimi eða neitt og á að hlífa hælnum.:!:Í göngugreiningu fékk ég líka innlegg með gati fyrir hælinn, svo að ég þurfi ekki að stíga í hann.:D  Verð að fara!8)

 

                                                            B Í B


» 2 hafa sagt sína skoðun

21.11.2007 19:20:10 / Gugga

Ár og öld...

Halló!

Úff, það er ár og öld síðan ég hef skrifað!:(  Það er nú ekki nógu gott!!:$  En, já, fréttir af mér, ummm...

Já, alveg rétt, ég var í dag bara að telja flöskur og dósir og gera jólakort, svo vorum við að perla og ég fór svo í tónfræði hjá henni Edit.;)  Svo heimsóttum við ömmu Guðbjörgu, en  Guðjón var eitthvað slappur.:|  Amma gaf okkur góð lækningarráð í sambandi við það og við fórum heim.:)  Við fengum okkur að borða og nú sit ég bara við tölvuna.:lol:

B Í B

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

08.10.2007 21:02:13 / Gugga

Bráðum...

Bráðum fara mamma og pabbi til Bandaríkjanna með Jeppasmiðjunni og við förum í pössun.:$ Bráðum erum við líka að fara til Víkur að hjálpa ömmu og Brynju að klára meirihlutann af neðri hæðinni sem þær eru núna að taka í gegn.:| Við skreppum líka smávegis til Péturseyjar.:lol: Já, og þetta eru líklega allir búnir að frétta.:( Hann Birgir frændi var að deyja!:cry: Það var sorglegt.:!:Nú er mamma nýbúin að fá sér MSN og talar stundum dálítið lengi ef að það er nú einhver online, eins og maður segir.:o  En, ja annars er gott að frétta af mér, bara hress, eins og venjulega.;)  En það var nú varla meira.8|

                                                            B Í B:P


» 0 hafa sagt sína skoðun

21.09.2007 19:29:13 / Gugga

Reykjavík!

Hæ!:!:Ég átti afmæli á mánudaginn!:) Ég fékk margar fallegar gjafir og kort og það komu margir gestir.;) Í dag tókum við til og þrifum húsið í krók og kring og í verðlaun fengum við að fara til Reykjavíkur með Leu og Oddnýju í skautahöllina.:haha: Áður en við fórum þangað komum við við í Intersport og vorum að skoða fyrir mig innanhússskó í frjálsarnar, fundum skó á tilboði, raunar eiga þeir að heita handboltaskór, meira að segja með sérhönnuðum sóla svo handboltamennirnir misstígi sig ekki á hlaupum.:D En maður hleypur nú líka í frjálsum!:|  Hm...  Svo fórum við á skauta, sem gekk bara vel, fórum í Regatta og 66°norður, fengum okkur ís og keyrðum svo heim.:lol: Við fengum okkur svo að borða og nú er ég hér.:$

 

                                     B B Í B


» 0 hafa sagt sína skoðun

08.09.2007 07:44:25 / Gugga

10, 9, 8, 7....

Ég var að vakna fyrir klukkutíma! :D  Já, já eins og það sé eitthvað merkilegt.:|  En jæja, mig langaði, fyrir þá sem hafa ekki séð niðurtalninguna, að minna á að það           eru bara 9 dagar í afmælið mitt, 17 sept.:haha:  Ég hlakka til!:)  Það gengur allt bærilega í skólanum, búin að bæta mig heeelling í stærðfræði á stuttum tíma.8|  Svona er þetta ævinlega!:whut:  Aldrei hef ég neitt að skrifa þegar ég hef tíma!!:S  Hm... Ég var að byrja í eldri lúðrasveitinni í gær.;)  Finn ekki meira, því miður.:cry:  Reyni eins og ég get!:o
                                            Þangað til næst,
                                                          B Í B

» 3 hafa sagt sína skoðun

15.08.2007 19:49:39 / Gugga

Bara vika!

Ég er að blogga í síðasta sinn áður en að skólinn byrjar eftir viku.:o  Ég fór í fjörupartí um daginn í Vík og við systkinin fluttum leikþátt sem fer fram á elliheimili og í partíinu voru frænkur mínar og frændur, einskonar ættarmót.:$  Við gistum hjá ömmu og fórum svo á Djúpavog (með nokkrum stoppum) og þá hitti ég loksins bestu vinkonu mína, Auði.:D  Hún er nýflutt heim frá Kína.:| 

Við gistum líka á Djúpavogi og fórum svo á Egilsstaði (með nokkrum stoppum), til Víðis og Helgu.:P Við fórum með þeim í bíltúra og fundum marga fallega steina.8)  Svo fórum við á Akureyri (þið vitið hvað á að standa hér) og gistum þar hjá Öddu og Línu.;)  Við fórum líka að Dettifossi og í Ásbyrgi og gistum þar í tjaldi.:!:  Síðan fóru mamma, pabbi og Guðjón heim en við Arndís vorum eftir hjá Línu.:S  Við vorum þar í 5 daga og komum heim í gær.8|  Mamma kom og sótti okkur til Reykjavíkur en þangað komum við með Öddu.:)

Við fórum í sund með Línu og lékum okkur mikið saman, m.a. í pleymo en það er sko uppáhaldið okkar um þessar mundir.:whut:

 

                                                               B Í B


» 1 hafa sagt sína skoðun

15.08.2007 13:09:05 / Gugga

Bara vika, ´önnur útgáfa

Halló! :) Ég ætlaði bara að skrifa einu sinni enn áður en skólinn byrjar eftir viku.:o Það hefur verið svooo mikið að gera að ég hef ekki haft tíma til að skrifa.:(  Við fórum í  fjörupartý í Vík um daginn og við krakkarnir fluttum frumsaminn leikþátt sem fer fram á elliheimili.;) Við gistum og svo héldum við áfram á Djúpavog (stoppuðum reyndar aðeins á leiðinni) og þar hitti ég loooksins bestu vinkonu mína, Auði.:D  Við gistum þar líka og fórum svo á Egilsstaði til Helgu og Víðis (með nokkrum stoppum).8)  Gistum þar og brunuðum svo til Akureyrar (þið vitið alvag hvað á að standa hér).:haha:  Við Arndís gistum þar oft en mamma og pabbi og Guðjón fóru heim.8| 

                                                B Í B


» 0 hafa sagt sína skoðun

29.06.2007 11:34:09 / Gugga

Sumarið er komið!!!

Fyrirgefiði að ég hef ekkert verið að skrifa núorðið, en það er bara svo mikið að gera á sumrin.:|  En, vitiði hvað?:!:  Við vorum að eignast folald!!!!:haha:  Hann heitir Eldur, því okkur fannst það passa við Glóð.:)  Og við Arndís vorum líka í sumarlestri í bókasafninu, en það er svona ókeypis 4 vikna námskeið þar sem við tökum okkur bækur og lesum og skráum svo í hefti sem við fáum.;)  svo á þriðjudögum var alltaf eitthvað um að vera í bókasafninu og síðasta daginn var ratleikur og minn hópur vann ásamt einum öðrum hópi.:P  Svo um daginn fór ég á ættarmót Lækjartúnsættarinnar (pabbaætt).:lol:

 

Núna fer ég bara út að leika, út í fjós og á þriðjudagskvöldum eru íþróttaæfingar í Gaul.:$

Vonandi eigið þið eins gott sumar og ég,

B Í B  


» 1 hafa sagt sína skoðun

16.06.2007 16:00:27 / Gugga

Kvennahlaup!

Halló!:!:  Ég var að koma úr kvennahlaupinu.:D  Ég hljóp 2,2km og fékk svo grillaðar pylsur og t2 eftir hlaupið.;)  Svo fórum við stelpurnar (sem sagt ég, mamma og Arndís) í sund og fengum frítt því við tókum þátt í hlaupinu.:haha:  Já, reyndar hef ég ekki gert neitt annað síðan.8|  Hm...  Ó, já, ég fer (eins og næstum aaaalltaf) í Gaul (Gaulverjabæ, þar sem ég átti einu sinni heima) á 17.júní og tek þátt í keppnum, fæ blöðru og andlitsmálningu og fé mér að borða kökur og ýmislegt góðgæti.:P  Oooh, hvað ég hlakka til!:)

                                                           B Í B


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 6
Heimsóknir
Í dag:  6  Alls: 25828
Klukkan
Dagsetning
23. febrúar 2012
Könnun
Hvað fékkstu stórt páskaegg?
nr. 1-2
5 atkvæði

nr.3-4
0 atkvæði

nr.5-6
1 atkvæði

nr.7
0 atkvæði

Fékk fleiri en eitt egg
0 atkvæði

Eitthvað annað en hér er ofangreint
0 atkvæði

Fjöldi atkvæða: 6